Monday, January 12, 2009

Samvinna og samstaða

Framsóknarflokkurinn sprettur úr samvinnuhreyfingu sem beitti sér fyrir því að efla samtakamátt þjóðarinnar. Skýtur því skökku við að hann virðist oft loga í flokkadráttum og skæruhernaði. En ekki er allt sem sýnist. Ég hef ekki orðið var við annað en eindrægni og samstöðu um að efla Framsóknarflokkinn á fundum mínum með flokksmönnum vegna framboðs míns til formanns flokksins.

Ég hef kosið að haga framboði mínu í samræmi við það. Ég hef kynnt mín baráttumál, mína persónu og reynslu, ekki síst úr stjórnmálum, bæði á fundum, í viðtölum og á heimasíðu minni, og lýst því yfir að ég sé fús til samstarfs við aðra frambjóðendur sem sækjast eftir sæti í forystu flokksins; einhverjir hafa talað um sögulegar sættir þó að ég kannist ekki við að nokkur sá ágreiningur hafi verið uppi sem þurfti að sætta. Með samvinnu og samstöðu eru okkur framsóknarmönnum allir vegir færir.

Málsvari breytinga

Ég býð mig fram til formanns Framsóknarflokksins sem málsvari breytinga og endurnýjunar í krafti skýrrar stefnu. Ég hef fylgt flokknum að málum í tvo áratugi og á þeim tíma unnið með flestum sem framsóknarmenn og flokksforystan hafa valið til trúnaðarstarfa og æðstu embætta. Án þess lærdómsríka en stundum harða skóla vildi ég ekki vera nú þegar ég sækist eftir formannsembættinu í flokknum því að þannig hef ég kynnst sigrum og ósigrum, framförum og afturförum, samstöðu og ágreiningi, og lært bæði af því sem hefur heppnast vel og heppnast miður.

Enginn einn maður sameinar stjórnmálaflokk. Flokksmenn sameinast um málefni og þeir sameinast um formann sem þeir treysta til að framfylgja stefnunni. Formaður á að vera kjölfesta á markvissri siglingu, ekki stafnskraut á stjórnlausu reki.

Sögulegt tækifæri

Persónulegar væringar og átök um völd, þar sem enginn raunverulegur málefnaágreiningur er fyrir hendi, veikja aðeins innviði flokksins. Framsóknarflokkurinn hefur tækifæri á flokksþingi sínu nú í janúar til að taka forystu í íslenskum stjórnmálum, verða fyrsti flokkurinn sem svarar kallinu um nýjar og lýðræðislegar aðferðir, fagleg vinnubrögð framar flokkspólitískum og varðstöðu um hagsmuni heimilanna í landinu. Þetta tækifæri okkar framsóknarmanna er sögulegt. Mætum því til flokksþingsins með opnum huga. Látum málefnin ráða ákvörðunum okkar á þinginu svo að hagur flokksins og hagur almennings fari saman. Í því efnahagsöngþveiti sem ríkir er krafist trúverðugrar stefnu, lausna sem duga og traustra forystumanna.

Opin stjórnsýsla

Að þessu mæltu lýsi ég mig reiðubúinn, hvar og hvenær sem er, til að standa skil á þeim upplýsingum sem krafist er af þingmönnum Framsóknarflokksins um hagsmuni og eignir í fyrirtækjum, sjóðum og fasteignum. Það er eðlilegt að formannsframbjóðendur uppfylli sömu skilyrði. Krafan um gegnsæja, heiðarlega og opna stjórnsýslu er sjálfsögð. Best fer á því að þeir sem gera tilkall til æðstu metorða í stjórnmálaflokkum hafi þá kröfu að leiðarljósi. Ég geri það.

(Mbl. 12. janúar 2009)

13 comments:

  1. Eimreiðin hefur lýst eindregnum stuðningi við framboð yðar.

    http://www.eimreidin.is/2008/12/pl-magnsson-sem-formann-framsknar.html

    ReplyDelete
  2. Athyglisvert niðurlag. Á það að þýða að þú þarft ekki að fela einhver hagsmunatengsl en mótframbjóðendur þurfa þess? Spyr sá sem ekki veit...

    Kveðja, Finnur (ekki hinn eini sanni)

    ReplyDelete
  3. Orð í tíma töluð Páll. Þú ert að stimpla þig inn sem sannkallað formannsefni Framsóknarflokksins og það á hárréttum tíma.

    Egill

    ReplyDelete
  4. Svona eiga leiðtogar að tala og með tillögu þinni um að gera opinberar eignir þínar í fyrirtækjum ertu í fararbroddi nýrra tíma í gegnsæi og upplýsingu. Ég skora á fjölmiðlamenn að taka undir þetta og fá hjá þér og öðrum formannsframbjóðendum þessar upplýsingar og birta þær opinberlega.

    Framsóknarkveðja

    Sigurður Stefánsson

    ReplyDelete
  5. Tek undir orð Finns. Hvaða hagsmuni hafa aðrir frambjóðendur að fela ef þeir stíga ekki fram og bjóða fram sömu upplýsingar og þú.

    Elín Ólafsdóttir, Akranesi

    ReplyDelete
  6. Ég segi nú kannski ekki að þetta jafnist á við ,,Ich bin ein Berliner'' :-) en þetta er samt ein flottasta yfirlýsing sem ég hef séð koma frá stjórnmálamanni síðustu árin:

    ,,Enginn einn maður sameinar stjórnmálaflokk. Flokksmenn sameinast um málefni og þeir sameinast um formann sem þeir treysta til að framfylgja stefnunni. Formaður á að vera kjölfesta á markvissri siglingu, ekki stafnskraut á stjórnlausu reki.''

    Þú ert þessi formaður sem við framóknarmenn getum sameinast um, maður sem tekur málefnin fram yfir persónur. Haltu þessu áfram.

    SJT

    ReplyDelete
  7. Ég hnaut um eftirfarandi;

    *Ég hef fylgt flokknum að málum í tvo áratugi og á þeim tíma unnið með flestum sem framsóknarmenn og flokksforystan hafa valið til trúnaðarstarfa og æðstu embætta. Án þess lærdómsríka en stundum harða skóla vildi ég ekki vera nú þegar ég sækist eftir formannsembættinu í flokknum því að þannig hef ég kynnst sigrum og ósigrum, framförum og afturförum, samstöðu og ágreiningi, og lært bæði af því sem hefur heppnast vel og heppnast miður.*

    Undir þetta get ég tekið enda er styrkur manna m.a. fólginn í hvernig þeir hafa lært af reynslunni og komið sterkari út fyrir vikið. Hinir sem eiga eftir að kynnast ósigrum, afturförum og ágreiningi eru veikari en þeir sem hafa dregið sinn lærdóm og sjá nú fram á sigra, framfarir og samstöðu. Þú ert okkar sterkasti frambjóðandi, okkar helsta von um nýjan og öflugan miðjuflokk án öfga til hægri eða vinstri, samvinnumaður með hugsjón og reynslu. Þú getur treyst á stuðning okkar hér fyrir austan á komandi árum.

    Sigrún Björnsdóttir
    Framsókn á austurlandi

    ReplyDelete
  8. Flott yfirlýsing hjá Páli. Þetta verður spennandi þing hjá Framsóknarmönnum um næstu helgi.

    Geta hinir frambjóðendurnir lýst þessu einnig yfir?

    ReplyDelete
  9. Páll er formaðurinn sem við þurfum á að halda.
    Ekki spurning, þetta snýst nefnilega um reynslu í pólitík síðustu 20 ára, bæði jákvæða og neikvæða reynslu. Af reynslunni læra menn að taka réttar ákvarðanir.
    Ég hvet framsóknarmenn um að fylgja liði um Pál, sem hefur unnið óeigingjarnt starf fyrir flokkinn í tvo áratugi og ætti að fá yfirburðakosningu á þinginu okkar.
    Höskuldur of Sigmundur eru fín þingmannsefni, en engir formenn, til þess skortir þá reynsluna.
    Páll er hinsvegar okkar framtíðarleiðtogi.

    Framsóknarmaður

    ReplyDelete
  10. Yfirburðamaður á svo mörgum sviðum hann Páll. Öruggt atkvæði frá mér.

    kveðja úr höfuðborginni

    Elías

    ReplyDelete
  11. Flottur pistill Palli.

    ReplyDelete
  12. Var að lesa færslu eftir Sigmund Davíð frá því í dag sem segir að björgun Framsóknarflokksins felist í því að setja "samvinnu og samstöðu aftur á oddinn." Mig minnti að ég hefði einmitt lesið þetta mjög nýlega og fletti upp á færslunni þinni frá því í morgun og mikið rétt... fyrirsögnin hefur veitt hinum unga og óreynda stjórnmálamanni innblástur: "Samvinna og samstaða." Fyndið :-Þ

    Finnsi

    ReplyDelete